19 March 2006

Uppskriftir frá Kristínu...

Kristín sendi mér þessar líku flottu uppskriftir, en það voru sko fjörtíu og eitthvað blaðsíður!! Svo ég set inn eina fisk uppskrift og eina kjúklinga svo set ég inn meira seinna ;)

Ástukjúlli (flott nafn, finnst ykkur ekki ;) )

Mjög fljótlegur og góður réttur sem klikkar aldrei.
Kjúklingabringur (eða leggir eða bitar) settar í eldfast mót.
1 bolli barbecue sósa
1 peli rjómi
Niðurskornir sveppir að vild. B
arbecuesósan og rjóminn hrært saman og sveppirnir settir út og síðan hellt yfir kjúllann.
Bakað í ofni í 35-40 mín.

Meðlæti:
Hrísgrjón og ferskt salat.

Fljótlegur fiskur

2 ýsuflök
¼ lítri matreiðslurjómi
125 gr sveppasmurostur ( má vera meira magn og öðruvísi ostur)
250 gr sveppir
Salt
Pipar
Paprikuduft

1. Ýsuflökin eru krydduð og þeim raðað í smurt eldfast mót
2. Stráið söxuðum sveppum ofan á, hrærið saman ostinum og rjómanum og hellið yfir.
3. Paprikudufti stráð efst, bakað í 30 mínútur við 200°c.
4. Gott er að setja alls kyns grænmeti í þetta, ferskt eða frosið

Ég vil taka það fram að ég er ekki búin að prófa þetta, en prófið endilega, og látið svo vita hvernig til tókst ;)

kveðja
Ásta sem er löt og ætlar að hafa pizzu (reyndar heimabakaða) í kvöldmatinn :)

4 Comments:

Blogger Kristín Erla said...

úhhhh settu inn uppskrift af heimabakaðir pizzu :)

21/3/06 09:30

 
Blogger Kristín Erla said...

Takk fyrir að setja þetta inn Ásta mín ég fékk þessar uppskriftir sendar frá Írisi vinkonu minni ég var reyndar ekki búin að kíkja á þær. En þessar tvær hljóma mjög vel

23/3/06 09:23

 
Blogger eddalinn said...

ummmm gerði fiskinn, þó með smá breytingum og nammi namm- samt er enn fiskifíla í íbúðinni minni- hún er ekki eins góð

24/3/06 09:09

 
Blogger eddalinn said...

Ég gat líka komið í veg fyrir að skjaldkirtillinn í okkur ómari fengi útrás af joðskorti :) kv. Edda Linn næringarfræðingur með meiru

24/3/06 11:32

 

Post a Comment

<< Home