07 March 2006

Fiskur

jæja ég prófaði Jensínu múslí, það var mjög gott- hefði sennilega verið betra ef ég hefði ekki bara haft 2 dl af haframjöli (það áttu að vera 6 hehe) hér er hún:


1 ½ bolli hveiti klíð
1 bolli sesamfræ
6 bollar haframjöl
1 bolli sólblómafræ
3 bollar hveitikím.

Gott er sömuleiðis að setja:
1 poka af möndlum
1 bolla af kókos

Þessu hrært saman í skál.

Í aðra skál er þessu blandað saman:
¾ bolli matarolía
1 ½ bolli púðursykur
1/3 bolli vatn
1 tsk vanilludropar.
Fyrst er sykurinn leystur upp svo hitt sett í skálina.

Að þessu loknu er öllu blandað saman og sett á bökunarplötu og bakað í 45 min við 150°.

Rúsínur mega ekki bakast með en þær má þó setja í að bakstri loknum.


Svona í lokin langaði mig að gá hvort einhver þarna úti eigi ekki góða fiskuppskrift- helst einhverja þar sem fiskurinn er bakaður í ofni (brenni allt sem fer á pönnu og klúðra öllu í potti)

kv. Elr

2 Comments:

Blogger maya said...

hallo

7/3/06 14:51

 
Blogger maya said...

Ofnréttur.
500 gr. ýsa
2 hvítlaukrif pressa í mauk
2 gulrætur1 epli
1 dós aspargus
Grófur pipar og salt yfir réttinn.
Ostur settur yfir og bakað í ofni sa.30-40 mín. Borið fram t.d. með hrísgrjónum og heitu brauði og salati.

7/3/06 15:30

 

Post a Comment

<< Home