Brauðið fræga
Jáhá ..... ég ætla að skrifa uppskriftina eftir minni :) enda er hún nú ekki svo flókin
Til að gera í 2 rúllutertubrauð
Rúllutertubrauð- fín frá Myllunni eru í grænum poka
1 askja paprikuostur
1 dós aspas
4-5 skinkusneiðar
Majónes
Ostur
Paprikukrydd / eða eitthvað álíka
Byrjað á því að setja paprikuostinn í pott og hella smá aspas safa með til að það sé auðveldar að bræða hann. Síðan er osturinn bræddur þannig hann verður eins og leðja.
Þá er skinkunni, 1 msk að majónesi og aspasinum bætt út í. Hrært saman.
Eftir það er gumsinu smurt í rúllutertubrauðin jafnt í öll horn :)
Rúllað upp og brauðið mýkt með að smyrja með majónesinu. Rifinn ostur settur ofan á og kryddað eftir smekk ofan á ostinn.
Einnig er hægt að prófa aðra osta :)
Enjoy kær kveðja Kristín Erla

3 Comments:
ummm ég slefa nú bara við tilhugsunina... þetta var svo mikið nammi
8/3/06 15:47
Jæja við ásta prófuðum brauðið aftur, reyndar brann það pínu og enginn ostur ofaná og engin skinka- en samt massa gott sko :) Varð enginn fyrir vonbrigðum enda skreyttum við það svo flott :)
14/3/06 12:26
Jæja ásta hvernig væri að setja inn uppskriftir af pastasósu :)
17/3/06 09:46
Post a Comment
<< Home