Uppskriftir frá Kristínu...
Kristín sendi mér þessar líku flottu uppskriftir, en það voru sko fjörtíu og eitthvað blaðsíður!! Svo ég set inn eina fisk uppskrift og eina kjúklinga svo set ég inn meira seinna ;)
Ástukjúlli (flott nafn, finnst ykkur ekki ;) )
Mjög fljótlegur og góður réttur sem klikkar aldrei.
Kjúklingabringur (eða leggir eða bitar) settar í eldfast mót.
1 bolli barbecue sósa
1 peli rjómi
Niðurskornir sveppir að vild. B
arbecuesósan og rjóminn hrært saman og sveppirnir settir út og síðan hellt yfir kjúllann.
Bakað í ofni í 35-40 mín.
Meðlæti:
Hrísgrjón og ferskt salat.
Fljótlegur fiskur
2 ýsuflök
¼ lítri matreiðslurjómi
125 gr sveppasmurostur ( má vera meira magn og öðruvísi ostur)
250 gr sveppir
Salt
Pipar
Paprikuduft
1. Ýsuflökin eru krydduð og þeim raðað í smurt eldfast mót
2. Stráið söxuðum sveppum ofan á, hrærið saman ostinum og rjómanum og hellið yfir.
3. Paprikudufti stráð efst, bakað í 30 mínútur við 200°c.
4. Gott er að setja alls kyns grænmeti í þetta, ferskt eða frosið
Ég vil taka það fram að ég er ekki búin að prófa þetta, en prófið endilega, og látið svo vita hvernig til tókst ;)
kveðja
Ásta sem er löt og ætlar að hafa pizzu (reyndar heimabakaða) í kvöldmatinn :)
